Ronaldo vill ljúka ferlinum í Madríd

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid.
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid. AFP

Stórstjarnan Cristiano Ronaldo vill framlengja samning sinn við Real Madrid, sem rennur út árið 2018. Hann segist vera tilbúinn að vera leikmaður Real Madrid út ferilinn.

Þessi 31 árs gamli Portúgali hefur nýlega verið orðaður við Manchester United og Paris Saint-Germain. Hann gaf í skyn fyrr á tímabilinu að hann væri opinn fyrir því að spila í bandarísku MLS-deildinni en nú kveður við annan tón og nú vill Ronaldo ljúka ferlinum sem leikmaður Real Madrid.

„Það er augljóst að ég vilji vera um kyrrt. Ég vil vera leikmaður Real Madrid þar til ég legg skóna á hilluna,“ sagði Ronaldo en hann hefur spilað 236 leiki fyrir Madrídinga og skorað í þeim 260 mörk. „Það væri sniðugt af Real að framlengja samninginn minn“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert