Sonur Ronaldo með mögnuð tilþrif

Sonur Cristiano Ronaldo getur náð langt.
Sonur Cristiano Ronaldo getur náð langt. AFP

Cristiano Ronaldo Jr., sex ára sonur portúgalska knattspyrnumannsins sem ber sama nafn, hefur greinilega fengið eitthvað af hæfileikum pabba síns. Nú hefur myndkeið komið á yfirborðið þar sem hann sést leika listir sínar eftir 4:1 sigur Real á Juventus í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Strákurinn leikur sér að því að fara framhjá tveimur krökkum á Millennium-vellinum í Cardiff, áður en hann setti boltann í netið. 

Hér að neðan má sjá myndskeiðið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert