Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason skoraði glæsilegt mark fyrir Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Leikurinn endaði 1:1 gegn Gautaborg þar sem Kolbein Þórðarson og Adam Ingi Benediktsson spila. Kolbeinn spilaði allan leikinn en Adam var á bekknum.
Arnór skoraði fyrsta mark leiksins á 33. mínútu sem var glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu en þetta var hans fyrsta mark á tímabilinu.
Vilken frispark! Arnór Traustason med ledningsmålet för IFK Norrköping 🎯
— discovery+ sport 🇸🇪 (@dplus_sportSE) April 20, 2024
📲 Se matchen på Kanal 5 och discovery+ pic.twitter.com/C42Ye0ICN3
Það dugði þó skammt en Gautaborg jafnaði metin á 40. mínútu og fleiri urðu mörkin ekki.
Ísak Andri Sigurgeirsson, liðsfélagi Arnórs, kom inn á sem varamaður á 80. mínútu