Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar

Kolbeinn Birgir Finnsson er í liði umferðarinnar í Danmörku.
Kolbeinn Birgir Finnsson er í liði umferðarinnar í Danmörku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Orri Steinn Óskarsson átti fyrirsagnir danskra fjölmiðla eftir 27. umferð úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en nú hafa þrír Íslendingar verið valdir í úrvalslið umferðarinnar í deildinni.

Liðið hefur verið birt á heimasíðu deildarinnar og þar er Kolbeinn Birgir Finnsson hjá Lyngby í stöðu vinstri bakvarðar, Stefán Teitur Þórðarson hjá Silkeborg er á miðjunni og svo er Orri Steinn hjá FC Köbenhavn að sjálfsögðu í fremstu víglínu.

Stefán skoraði fyrir Silkeborg sem vann óvæntan stórsigur á Midtjylland, 3:0, og Kolbeinn lagði upp mark Lyngby í jafnteflisleik gegn Vejle, 1:1. Orri skoraði síðan þrennuna gegn AGF sem svo mikið hefur verið fjallað um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert