Amorim áfram í Sporting

Ruben Amorim heldur kyrru fyrir í Lissabon.
Ruben Amorim heldur kyrru fyrir í Lissabon. AFP/PATRICIA DE MELO MOREIRA

Ruben Amorim tilkynnti í gær að hann heldur áfram sem þjálfari Sporting Lissabon. Sporting tryggði sér portúgalska meistaratitilinn um helgina í annað sinn síðan Amorim tók við liðinu árið 2020.

Amorim var sterklega orðaður við Liverpool í vetur og ræddi við West Ham í apríl um möguleikann að taka við af David Moyes. Julen Lopetegui hefur náð samkomulagi við West Ham um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins samkvæmt breskum fjölmiðlum.

Hinn 39 ára gamli Amorim sagði: „Ég er samningsbundinn hér og þetta er sérstök stund fyrir mig og félagið. Nú reynum við að vinna þriðja titilinn saman.“

Mikið var um dýrðir í titilfögnuði Sporting Lissabon á Marques …
Mikið var um dýrðir í titilfögnuði Sporting Lissabon á Marques do Pommel-torginu í Lissabon um helgina. AFP/PATRICIA DE MELO MOREIRA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert