Tvöfalt undanúrslitaeinvígi HK og Stjörnunnar

Fríða Sigurðardóttir og stöllur í HK hafa titil að verja …
Fríða Sigurðardóttir og stöllur í HK hafa titil að verja í bikarnum. mbl.is/Golli

Bikarmeistarar HK mæta Stjörnunni í undanúrslitum hjá báðum kynjum í bikarkeppni Blaksambands Íslands en dregið var í Laugardalnum í dag.

Í karlaflokki mætast Stjarnan og HK annars vegar, en KA og Þróttur Neskaupstað hins vegar. Hjá konunum mætir Þróttur Neskaupstað liði Aftureldingar, sem hefur haft talsverða yfirburði í Mizuno-deildinni í vetur, og Stjarnan mætir HK eins og áður segir.

Undanúrslitin fara fram 7. mars og úrslitaleikirnir degi síðar, en leikið verður í Laugardalshöll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert