Stigamet og þrefalt stökk

Ivana Reitmeyerova.
Ivana Reitmeyerova. Ljósmynd/Art Bicnick

Emilía Rós Ómarsdóttir úr Skautafélagi Akureyrar sló, svo um munaði, heildarstigamet í Stúlknaflokki A á seinni keppnisdegi Vetrarmóts Skautasambands Íslands. Emilía Rós hafði einnig slegið stigametið í stutta prógramminu í gær og hlaut 81,05 stig samanlagt.

Emilía Rós hefur vaxið mikið í vetur og sýndi nánast hreint prógramm með fallegum spinnum og stökkum. Fyrra met, 74,39 stig, átti Júlía Grétarsdóttir, SB, en það setti hún á Haustmótinu árið 2010.

Þær Helga Karen Pedersen, SB, og Herdís Birna Hjaltalín, SB, sýndu mikið öryggi í æfingum sínum í dag. Helga Karen hafnaði í öðru sæti með 58,50 stig og fór upp fyrir Herdísi Birnu eftir langa prógrammið. Herdís hafnaði í því þriðja með heildarskor upp á 55.44 stig.

Andrúmslofið var spennuþrungið þegar Unglingaflokkur A steig á svellið enda munaði litlu á milli efstu stúlknanna. Margar eru þær að reyna við þrefalt stökk og tvöfaldan Axel en þessi stökk eru það sem helst skilur á milli stúlknanna. Kristín Valdís Örnólfsdóttir, SR, steig þriðja síðust inná ísinn og sýndi mikið öryggi og sjálfstraust í æfingum sínum þó herslumuninn vantaði upp á að lenda stökkunum hreinum.

Kristín fékk heildarskor uppá 84,91 stig og fór upp fyrir Agnesi Dís, sem var önnur eftir fyrri keppnisdag. Júlía Grétarsdóttir, SB, var að keppa á sínu fyrsta móti á Íslandi þetta keppnistímabil en hún æfir og keppir í Kanada. Júlía var fimmta eftir stutta prógramið í gær en átti góðan seinni dag og náði þriðja sætinu með 81,15 stig.

Pressan var því mikil þegar Þuríður Björg Björgvinsdóttir, SB, steig síðust inná svellið. Þuríður sýndi fallegar æfingar en líkt og Kristín Valdís þá vantaði herslumuninn í að klára stökkin til fulls. Þuríður sýndi það hinsvegar og sannaði að hún er vel að titlinum komin er hún lenti hreinu þreföldu Salchow og sigraði með heildarskor uppá 86,90 stig.

Ivana Reitmeyerova frá Slóvakíu setti lokapunktinn á veturinn er hún sýndi glæsileg tilþrif á ísnum í langa prógraminu. Ivana er að koma aftur inn eftir langt hlé en sýndi það svo sannarlega af hverju hún náði lágmörkum til keppni á Ólympíuleikum árið 2010. Hún var þónokkuð frá sínu besta en þreytt og glöð að keppni lokinni og uppskar mikil fagnaðarlæti meðal áhorfenda.

Það er ómetanlegt fyrir skautaíþróttina í landinu að fá svo glæsilega íþróttakonu eins og Ivönu á mót hérlendis. Ekki síður er það mikilvægt fyrir ungviðið að horfa á fyrirmyndir sínar á heimavelli. 

Eins og sjá má á keppendum hefur skautaíþróttin vaxið mjög og ber þar helst að nefna fjölda stúlkna í efstu flokkunum og hversu mikil baráttan er orðin í Unglingaflokki A. Framtíðin er því björt í listhlaupi á skautum.

Þuríður Björg Björgvinsdóttir.
Þuríður Björg Björgvinsdóttir. Ljósmynd/ Art Bicnick
Emilía Rós Ómarsdóttir.
Emilía Rós Ómarsdóttir. Ljósmynd/Art Bicnick
Ivana Reitmeyerova.
Ivana Reitmeyerova. Ljósmynd/Art Bicnick
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert