Erla bætti við bronsi

Erla Sigurlaug Sigurðardóttir var kampakát eftir götuhjólreiðarnar og hún náði …
Erla Sigurlaug Sigurðardóttir var kampakát eftir götuhjólreiðarnar og hún náði einnig í verðlaun í dag. Ljósmynd/ÍSÍ

Erla Sigurlaug Sigurðardóttir vann nú fyrir skömmu til bronsverðlauna í fjallahjólreiðum á Smáþjóðaleikunum í San Marínó.

Tími Erlu var ein klukkustund og fjórar mínútur og var hún fimm mínútum á undan Kolbrúnu Dröfn Ragnarsdóttur sem varð fjórða. Kristín Edda Sveinsdóttir kláraði ekki keppnina.

Erla Sigurlaug var þarna að vinna sín önnur verðlaun á leikunum, en hún vann til silfurverðlauna í götuhjólreiðum á þriðjudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert