Helga fékk gull og Margrét brons

Íslendingar við keppni í bogfimi. Gullverðlaunahafinn Helga Kolbrún Magnúsdóttir er …
Íslendingar við keppni í bogfimi. Gullverðlaunahafinn Helga Kolbrún Magnúsdóttir er þriðja frá vinstri. Ljósmynd/ÍSÍ

Það var góð uppskera hjá Íslandi í einstaklingsflokki kvenna í bogfimi með trissuboga (e. compound) á Smáþjóðaleikunum í San Marínó.

Helga Kolbrún Magnúsdóttir tryggði sér gullverðlaun, en hún hafði betur gegn keppanda frá Lúxemborg í úrslitaviðureigninni 140:129. Þá tryggði Margrét Einarsdóttir sér brons, en hún lagði heimakonu í viðureign sinni um bronsið 137:133.

Fyrr í dag tryggðu svo tvær íslenskar sveitir sér brons með trissuboga, þ.e. blandaða sveit Íslands og karlasveitin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert