Tap í síðasta leik í strandblaki

Heiða Gunnarsdóttir og Matthildur Einarsdóttir.
Heiða Gunnarsdóttir og Matthildur Einarsdóttir. mbl.is/Kris

Þær Matthildur Einarsdóttir og Heiða Elísabet Gunnarsdóttir töpuðu fimmta og síðasta leik sínum í strandblaki á Smáþjóðaleikunum í San Marínó í dag. Þær mættu þá Carole Grethen og Rebekka Klerf frá Lúxemborg og urðu lokatölur 2:0. 

Matthildur og Heiða höfðu aðeins æft saman í tvær vikur fyrir leikana og geta þær borið höfuðið hátt, þrátt fyrir tap í öllum fimm viðureignum sínum á mótinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert