Guðlaugur: Stoltur af strákunum

„Það var mikil spenna, harka og barátta í þessum leik og sterkar varnir hjá báðum liðum og markverðirnir að verja mikilvæg skot. Ég upplifði bara öflugan handbolta í kvöld,“ sagði Guðlaugur Arnarsson þjálfari Fram eftir eins marks sigur Fram á Haukum, 22:21 í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.

Guðlaugur er vitanlega hæst ánægður með þessa byrjun á leiktíðinni. „Þetta er bara frábært. Við lögðum auðvitað alltaf upp með að vinna leikinn. En það er klárlega krefjandi á móti svona sterku liði. Ég er bara ofboðslega stoltur af strákunum,“ sagði Guðlaugur við mbl.is eftir leikinn í Safamýri í kvöld.

Viðtalið við Guðlaug má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert