Birna Berg með tvö mörk í stórsigri Sävehof

Birna Berg Haraldsdóttir
Birna Berg Haraldsdóttir Ljósmynd/Guðmundur Svansson

Birna Berg Haraldsdóttir og stöllur hennar í Sävehof burstuðu Skövde, 34:18, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Birna Berg skoraði 2 mörk í leiknum fyrir Sävehof sem hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert