Einar Rafn með sjö mörk í tapleik

Einar Rafn Eiðsson í leik með FH á síðustu leiktíð.
Einar Rafn Eiðsson í leik með FH á síðustu leiktíð. mbl.is/Árni Sæberg

Einar Rafn Eiðsson átti flottan leik með Nøtterøy í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Einar Rafn skoraði 7 mörk fyrir lið sitt og var valinn besti maður liðsins en það dugði skammt því það tapaði fyrir Arendal, 27:20. Einar Ingi Hrafnsson leikur með Arendal og hann skoraði 4 mörk og þá skoraði Gísli Jón Þórisson eitt fyrir Nøtterøy.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert