Fjórir Íslendingar tilnefndir

Arnór Þór Gunnarsson er talinn einn af sex bestu leikmönnum …
Arnór Þór Gunnarsson er talinn einn af sex bestu leikmönnum deildarinnar í sinni stöðu. mbl.is/Ómar

Þrír íslenskir leikmenn og Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, eru tilnefndir í kosningu á Stjörnuliði þýska handboltans sem nú stendur yfir á vef þýska handknattleikssambandsins.

Sex leikmenn eru tilnefndir í hverri stöðu á vellinum og þeir Aron Pálmarsson hjá Kiel, Alexander Petersson hjá Rhein-Neckar Löwen og Arnór Þór Gunnarsson hjá Bergischer eru í hópi þeirra sem koma til greina.

Hér er hægt að greiða atkvæði.

Hægt er að greiða atkvæði til 1. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert