Róbert úr leik - fimmtán mörk frá Mikkel Hansen

Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. FRANCK FIFE

Róbert Gunnarsson og félagar í Paris SG féllu úr leik í Meistaradeild Evrópu í handknattleik þegar þeir biðu lægri hlut fyrir ungverska liðinu Vezprem í átta liða úrslitunum, 34:28. Daninn Mikkel Hansen átti stórleik fyrir Parísarliðið og skoraði fimmtán mörk en það dugði ekki til.

Róbert skoraði þrjú mörk í leiknum en Ungverjarnir voru mun sterkari í leiknum og voru yfir í hálfleik 16:12 og leyfðu Parísarliðinu aldrei að komast nálægt sér.

Mikkel Hansen átti stórleik fyrir Paris SG í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert