Ásgeir Örn með fimm mörk í jafntefli

Ásgeir Örn Hallgrímsson í leik með íslenska landsliðinu.
Ásgeir Örn Hallgrímsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Golli

Nimes gerði í dag 30:30 jafntefli við Creteil í frönsku 1. deildinni í handknattleik en tveir Íslendingar komust á blað.

Staðan í hálfleik var 15:13 fyrir heimamönnum en Creteil kom sér aftur inn í leikinn og komst í forystu en liðið missit það niður undir lok leiksins.

Leiknum lauk með 30:30 jafntefli þar sem Ásgeir Örn Hallgrímsson gerði fimm mörk fyrir Nimes en Snorri Steinn Guðjónsson gerði eitt mark fyrir liðið.

Arnór Atlason gat ekki leikið með St Raphaël vegna meiðsla þegar liðið vann Nantes, 27:23, á útivelli. 

St Raphaël situr í fjórða sæti deildarinnar eftir fimm umferðir. Nimes er í sætinu fyrir neðan. Róbert Gunnarsson og félagar í PSG tróna á toppnum. PSG tekur á móti Chambéry í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert