Alfreð hafði betur gegn Rúnari

Alfreð Gíslason þjálfar Kiel.
Alfreð Gíslason þjálfar Kiel. Ljósmynd/JONAS GUETTLER

Kiel vann nauman 27:26 útisigur á Hannover Burgdorf í þýsku A-deildinni í handbolta í dag. Rúnar Kárason komst ekki á blað hjá Hannover, en Alfreð Gíslason þjálfar Kiel. 

Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og var Kiel 13:12 yfir í hálfleik. Niclas Ekberg og Marko Vujin skoruðu átta mörk hvor fyrr Kiel, en Fabian Böhm var með sex fyrir Hannover. 

Kiel er í 2. sæti deildarinnar með 40 stig, tveimur stigum minna en Flensborg sem á leik til góða. Hannover er í 8. sæti með 22 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert