Framlengir við uppeldisfélagið

Svala Júlía Gunnarsdóttir (nr. 11) fagnar sigri með Fram.
Svala Júlía Gunnarsdóttir (nr. 11) fagnar sigri með Fram. mbl.is/Óttar Geirsson

Handknattleikskonan Svala Júlía Gunnarsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Fram.

Svala Júlía er 24 ára og leikur á línunni. Hefur hún leikið með liði Fram frá unglingsaldri og einnig þjálfað hjá yngri flokkum félagsins.

„Svala Júlía er einn af þeim mörgu leikmönnum sem hafa alist upp hjá Fram og tekið þátt í uppbyggingu félagsins.

Ég fagna því að hún sé áfram í okkar öfluga liði og hlakka til að starfa með henni,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, í tilkynningu frá handknattleiksdeild félagsins.

Fram á fyrir höndum undanúrslitaeinvígi gegn Haukum í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Fyrsti leikurinn fer fram þriðjudaginn 23. apríl í Úlfarsárdal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert