Bjarki verðlaunaður fyrir góða frammistöðu

Bjarki Már Elísson lék vel.
Bjarki Már Elísson lék vel. mbl.is/Brynjólfur Löve

Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handbolta er í úrvalsliði fyrri leikja átta liða úrslita Meistaradeildar Evrópu.

Hornamaðurinn lék mjög vel fyrir ungverska liðið Veszprém er það lagði Aalborg frá Danmörku að velli á heimavelli, 32:31.

Danska liðið var með sex marka forskot, sem Bjarka og félögum tókst að vinna upp og snúa taflinu sér í vil.

Bjarki skoraði fimm mörk úr fimm skotum og komu flest mörkin á spennandi lokakafla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert