Suarez við aganefnd FIFA: Missti jafnvægið og datt á öxlina

Luis Suarez fann fyrir miklum verk þegar hann rakst í …
Luis Suarez fann fyrir miklum verk þegar hann rakst í öxl Chiellini. AFP

Luis Suarez sagði við aganefnd FIFA að hann hefði dottið á Giorgio Chiellini, rekið andlitið í öxlina á honum og um algjört óviljaverk hafi verið að ræða.

„Um leið og ég fann snertingu varð ég að beygja mig í hnjánum, missti jafnvægið og við það féll ég á andstæðing minn. Ég rak andlitið í öxl hans sem skildi eftir smá marblett en mikinn verk í tönnunum - þess vegna stoppaði dómarinn leikinn,“ sagði Suarez í bréfi sem hann sendi aganefndinni. 

Knattspyrnusamband Úrúgvæ ætlar að áfrýja banni Suarez og hefur til þess sjö daga. Bréf Suarez er birt í breska blaðinu Telegraph

Sjö manna nefnd FIFA hafnaði rökum Suarez og dæmdi hann í fjögurra mánaða bann.

Giorgio Chiellini varnarmaður Ítala sýnir áverka eftir viðskipti sín við …
Giorgio Chiellini varnarmaður Ítala sýnir áverka eftir viðskipti sín við Suarez. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert