Suárez biðst opinberlega afsökunar

Luis Suárez eftir atvikið fræga.
Luis Suárez eftir atvikið fræga. AFP

Luis Suárez, leikmaður Liverpool og Úrúgvæ, hefur sent frá sér opinbera afsökunarbeiðni eftir bitið fræga í leik Ítalíu og Úrúgvæ á heimsmeistaramótinu í Brasilíu. Suárez beit þá Giorgio Chiellini sem kunnugt er og fékk fjögurra mánaða keppnisbann frá knattspyrnu í kjölfarið.

Suárez segir í bréfi sem hann birti á Twitter-síðu sinni að eftir að hafa fengið tíma með fjölskyldu sinni hafi hann getað róað sig niður og horfst í augu við atvikið. Hann sjái mikið eftir því og fullvissi almenning um það að slíkt muni ekki endurtaka sig. Afsökunarbeiðnina má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert