Fjölnir vann öruggan sigur á Val, 73:59, í Lengjubikarnum í körfuknattleik karla í Vodafonehöllinni í kvöld. Fjölnisliðið hafði sjö stiga forskot í hálfleik, 40:33.
Valur var með yfirhöndina í fyrsta leikhluta en eftir það tóku gestirnir öll völd á leikvellinum.
Í Lengjubikar kvenna vann Valur lið Hauka, 88:84. Hamar bar sigurorð af Njarðvík, 58:45. Keflavík lagði Íslandsmeistara Snæfells, 76:61, og Grindavík vann KR, 63:57.