United ætlar að halda í Di Maria

Angel Di Maria hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem …
Angel Di Maria hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans. EPA

Manchester United ætlar að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda Argentínumanninum Angel Di Maria á Old Trafford, en sögusagnir hafa verið um framtíð hans hjá félaginu.

Fréttir bárust af því að Louis van Gaal, knattspyrnustjóri liðsins, hefði hellt sér yfir Di Maria eftir 2:1-sigurinn á Liverpool um síðustu helgi, og ýtti það undir sögur um brotthvarf Argentínumannsins í fyrra.

Di Maria kom til United síðasta sumar frá Real Madrid á 60 milljónir punda, en frammistaða hans í vetur hefur verið upp og ofan - sérstaklega miðað við þær vonir sem bundnar voru við komu hans. Forráðamenn félagsins vilja þó ekki missa þolinmæðina strax og trúa því að hann geti enn orðið stjarna á Old Trafford.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert