„Börðumst allan tímann“

Ingvi Rafn Ingvarsson, hinn 21 árs gamli bakvörður Tindastóls, skoraði 9 stig og gaf 4 stoðsendingar í sigrinum á KR 80:72 þegar Stólarnir jöfnuðu 1:1 í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilnn. 

„Ég held að við höfum viljað þetta meira. Stuðningurinn var með okkur og frábær stemning. Fólk á hrós skilið fyrir stemninguna í kvöld. Þetta var frábært,“ sagði Ingvi meðal annars í samtali við mbl.is. 

Ingvi sagði jafnframt að Tindastóll hafi ekki gert neinar taktískar breytingar á leik sínum í fjarveru Myrons Dempsey. Viðtali við Ingva má sjá í heild sinni á meðfylgjandi myndskeiði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert