Körfuboltastjarnan LeBron James var allt annað en sáttur við dómara leiksins eftir tap síns liðs Los Angeles Lakers fyrir NBA-meisturum Denver Nuggets, 101:99, í Denver í nótt.
Jamal Murray tryggði Denver sigur á lokasekúndu leiksins en Denver-liðið er nú með 2:0-forystu í einvígi liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Fjóra sigra þarf til að tryggja sér áfram.
Á blaðamannafundi eftir leik var LeBron mjög ósáttur við að dómarar leiksins höfðu ekki beitt myndbandsdómgæslunni er D'Angelo Russell fékk einn á kjálkann.
„Ég skil ekki hvað er í gangi með myndbandsdómgæsluna. D'Angelo Russell fær einn á kjálkann er hann er að keyra að körfunni. Af hverju í andskotanum erum við með myndbandsdómgæslu ef við notum hana ekki, ég skil þetta ekki,“ sagði LeBron James.