Körfuknattleiksþjálfarinn Frank Vogel hefur verið rekinn frá stjörnuliði Phoenix Suns í bandarísku NBA-deild karla í körfubolta.
Vogel tók við liðinu síðasta sumar en miklar væntingar voru bundnar við Phoenix-liðið á þessu tímabili.
Var liðið nú þegar með Kevin Durant og Devin Booker og bætti við sig Bradley Beal, þar með þriðju stjörnunni.
Aftur á móti hafnaði liðið í sjötta sæti deildarinnar og tapaði, 4:0, fyrir Minnesota Timberwolves í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Vogel þjálfaði áður Indiana Pacers, Orlando Magic og Los Angeles Lakers þar sem hann vann NBA-deildina árið 2020.