Dallas Mavericks hafði betur gegn Oklahoma City Thunder, 119:110, í öðrum leik liðanna í einvígi þeirra í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta karla í Oklahoma í nótt.
Dallas jafnaði þar með einvígið í 1:1 en fjóra sigra þarf til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar.
Luka Doncic fór að vanda mikinn fyrir Dallas en hann skoraði 29 stig, tók tíu fráköst og gaf sjö stoðsendingar.
Shai Gilgeous-Alexander átti þá stórleik fyrir Oklahoma en hann skoraði 33 stig, tók 12 fráköst og gaf átta stoðsendingar.
Næstu tveir leikir liðanna fara fram í Dallas.