Vöruskiptin hagstæð um 104,5 milljarða

Meira var flutt frá landinu en til landsins á síðasta …
Meira var flutt frá landinu en til landsins á síðasta ári mbl.isEggert Jóhannesson

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2011 fluttar út vörur fyrir 626,4 milljarða króna en inn fyrir 521,9 milljarð króna fob (560,6 milljarða króna cif).

Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 104,5 milljörðum en árið áður voru þau hagstæð um 119,9 milljarða á sama gengi.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 15,4 milljörðum króna óhagstæðari en árið áður.

Vöruskiptin hagstæð um 6,9 milljarða í desember

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir 60,4 milljarða króna og inn fyrir 53,4 milljarða króna fob (56,6 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því  hagstæð um 6,9 milljarða króna. Í desember 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 14,6 milljarða króna á sama gengi.

Í bráðabirgðatölum fyrir árið hefur verið leiðrétt fyrir verslun með skip og flugvélar á árinu 2011.
 
Álið verðmætast

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2011 var heildarverðmæti vöruútflutnings 11,9% meira en árið áður á föstu gengi. Iðnaðarvörur voru 53,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,2% meira á árinu 2011 en árið áður. Ál og afurðir áls vó þyngst í útflutningi iðnaðarvara auk þess að aukast mest, í krónum talið, frá árinu 2010 (13,9 milljarðar). Sjávarafurðir voru 40,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14,4% meira en árið 2010. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða var fryst fiskflök en útflutningur sjávarafurða, í krónum talið, jókst mest á frystum heilum fiski (16,7 milljarðar).

Verðmæti innflutnings jókst um 18,7%

Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2011 18,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings voru hrá- og rekstrarvara með 31,7% hlutdeild og fjárfestingarvara með 21,9% hlutdeild. Af einstökum liðum varð mest aukning, í krónum talið, í hrá- og rekstrarvöru 14,0% (20,3 milljarðar) og eldsneyti og smurolíu 32,4% (18,7 milljarðar), samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Leiðrétting sett inn 2. febrúar kl 9:37

Vegna villu í grunngögnum Hagstofu Íslands í desember þarf að leiðrétta bráðabirgðatölur um vöruskiptin við útlönd 2011. Útflutningur í desember 2011 lækkar því um 7,6 milljarða í heild. Endanlegar niðurstöður um vöruskiptin fyrir árið 2011 verða gefnar út í apríl 2012, segir í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK