Neikvæðar horfur að mati Moody's

Stjórnarráð Íslands.
Stjórnarráð Íslands. mbl.is/Ernir

Í árlegri skýrslu matsfyrirtækisins Moody's um íslenska hagkerfið kemur fram að lánshæfiseinkunn landsins sé Baa3 en að horfurnar séu neikvæðar.

Fram kemur í skýrslunni að matið byggist á fjórum lykilþáttum; efnahagslegum styrk, styrk stofnana, fjárhagslegum styrk ríkisins og hversu næmt landið er gagnvart ytri áhættu. Þá segir að samspil þessara þátta hafi einnig áhrif.

Fram kemur að efnahagslegur styrkur hér á landi sé hóflegur, styrkur stofnana mikill, fjárhagslegur styrkur ríkisisins sé lítill og að Ísland sé afar næmt gagnvart utanaðkomandi áhættu. Niðurstöðurnar endurspegli neikvæðar horfur matsfyrirtækisins.

Matsfyrirtækið segir að horfurnar geti breyst úr neikvæðum í stöðugar haldi íslensk stjórnvöld sig við þau markmið sem þau hafi sett sér í ríkisrekstrinum á þessu ári og ef engin frekari lagalaeg atriði komi upp sem geti haft neikvæða áhrif á ríkisreksturinn og skuldastöðuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK