Telur að glæpum fjölgi með komu Uber

Formaður Bifreiðastjórafélagsins Frama segir starfsemi Uber ekki falla að íslensku …
Formaður Bifreiðastjórafélagsins Frama segir starfsemi Uber ekki falla að íslensku umhverfi. Jim Smart

Aukin glæpastarfsemi ásamt svindli á farþegum getur fylgt leigubílaþjónustunni Uber, komi hún til landsins. „Hver ætlar að fylgjast með þegar Pétur og Páll eru að sjá um aksturinn?“ spyr Ástgeir Þorsteinsson, formaður bifreiðastjórafélagsins Frama. Fyrirkomulagið segir hann fara gegn gildandi lögum. „Það gilda hér ákveðin lög um leigubifreiðar og það er ekkert hægt að fjölga þeim ef manni dettur í hug en þá er spurning hvort þetta fari út í ólöglega starfsemi,“ segir Ástgeir.

Tengir bílstjóra og farþega í gegnum app

Þjón­usta Uber virk­ar þannig að fólk get­ur pantað bíl í gegn­um app í sím­an­um. Fyr­ir­tækið á enga bíla og eng­ir starfs­menn eru hjá fyr­ir­tæk­inu en hins veg­ar geta al­menn­ir borg­ar­ar skráð sig sem bíl­stjóra og teng­ir appið þá við farþega á sama svæði.

Líkt og mbl.is greindi frá í vikunni hefur nægi­lega mörg­um und­ir­skrift­um verið safnað á vefsíðu leigu­bílaþjón­ust­unn­ar til þess að fyr­ir­tækið geti hafið starf­semi í Reykja­vík. Er nú hægt að skrá sig sem bíl­stjóra á síðunni.

„Ætlar fólk að senda börnin sín í þessum bílum?“

Mörg stétt­ar­fé­lög leigu­bíls­tjóra hafa séð þró­un­ina sem ógn og telja að unnið sé gegn hags­mun­um stétt­ar­inn­ar. Hafa þau bent á að bíl­stjór­arn­ir hafi ekki rétt­indi til akst­urs og reynt að koma í veg fyr­ir að leigu­bíl­ar, sem ekki eru á venju­leg­um leigu­bíla­stöðvum, séu notaðir í slík­an akst­ur.

Ástgeir bendir á að samkvæmt lögum um leigubifreiðar megi leigubílstjórar ekki hafa verið dæmdir til refsivistar eða framið alvarlegt eða ítrekað brot á þeim lögum sem um starfsemina gilda. Þá þurfa þeir að hafa lokið tilskildum námskeiðum auk fleiri skilyrða. „Ætlar fólk að senda börnin sín í þessum bílum. Ætlar það að treysta þessu?“ spyr Ástgeir. Þá vísar hann til nauðgunarmáls sem kom upp í Nýju-Delí á Indlandi þar sem stjórn­völd bönnuðu í kjölfarið þjónustuna. „Þetta var gefið frjást í Svíþjóð á sínum tíma og þeir eru enn að berjast við það. Það voru bara rán og morð og nauðganir sem fylgdu því í byrjun,“ segir hann og vísar til breytinga sem gerðar voru á sænskri löggjöf um leigubifreiðar á árinu 1989.

Á öllum Norðurlöndunum

Aðspurður hvort aukin samkeppni á leigubílamarkaðnum sé ekki óumflýjanleg á einhverjum tímapunkti segir hann ómöglegt að samþykkja þetta í núgildandi lagaumhverfi. „Ég sé ekkert að þessu fyrirkomulagi hérna og hverju breytir það að kalla þjónustuna Uber eða að borga bara fyrir venjulegan leigubíl,“ segir hann.

Uber er nú starfandi í hundruð borga í 52 löndum og þar á meðal öllum Norðurlöndunum. Fyrirtækið var stofnað árið 2009 og eru höfuðstöðvar þeirra í San Fransico í Bandaríkjunum. Uber telst orðið verðmæt­asta ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tæki heims eft­ir að hafa klárað loka­stig fjár­mögn­un­ar sinn­ar. Er fyr­ir­tækið metið á um 40 millj­arða doll­ara.

Samgöngustofa: Ekki gert ráð fyrir þjónustunni í lögum

Í svari við fyrirspurn mbl segir upplýsingafulltrúi Samgöngustofu, Þórhildur Elínardóttir, að ekki sé gert ráð fyrir þjónustu sem Uber samkvæmt núgildandi lögum, nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. „Lögin snúast um leyfisskyldan atvinnuakstur þar sem bæði leigubílastöð og bílstjóri þurfa að uppfylla tiltekin skilyrði og hafa fengið úthlutuðu leyfi,“ segir hún

Þá segir hún að út frá þeim takmörkuðu upplýsingum sem Samgöngustofa hefur um starfsemi Uber virðist sem þar sé hvorki um að ræða leigubifreiðastöð né leigubílstjóra með atvinnuleyfi. „Til að fá slík atvinnuleyfi þurfa menn t.d. að hafa hreint sakavottorð. Hins vegar skal áréttað að ekkert er því til fyrirstöðu að Uber geti sótt um leyfi hjá Samgöngustofu,“ segir Þórhildur. 

Lögreglu yrði gert viðvart

Aðspurð hvernig Samgönustofa myndi bregðast við slíkri starfsemi segir hún að gripið yrði til viðeigandi ráðstafana og lögreglu gert viðvart eftir því sem við á. Þá gæti aksturinn haft afleiðingar fyrir umrædda bílstjóra þar sem um leyfisskylda starfsemi væri að ræða. 

Til þess að aðlaga þjónustuna að íslenskum lögum þyrftu forsvarsmenn Uber að fá leyfi sem leigubifreiðastöð og allir bílstjórar þjónustunnar að fá úthlutað leyfi til leigubifreiðaaksturs. Þá er þó einnig er vert að hafa í huga að einungis er veittur takmarkaður fjöldi leyfa til leigubifreiðaaksturs.

Hægt er að panta til sín bílstjóra í gegnum Uber …
Hægt er að panta til sín bílstjóra í gegnum Uber appið. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK