Skjaldborg um íslenska skyrið

Auglýsingar Arla eru hluti að markaðssókn fyrirtækisins í Bretlandi. MS …
Auglýsingar Arla eru hluti að markaðssókn fyrirtækisins í Bretlandi. MS ætlar með íslenska skyrið til Brelands í sumar. Skjáskot úr auglýsingu Arla

Líflegar umræður hafa myndast á Facebook síðu Arla skyr þar sem tugir Íslendinga hafa gripið til varna fyrir íslenska skyrið. 

Mbl vakti í gær athygli á Facebook síðunni þar sem sænska fyrirtækið Arla, sem nýverið hóf sölu á skyri í Bretlandi, segist vera með ekta íslenskt skyr. Þar segist fyrirtækið vera á Höfn á Íslandi og fullvissar breskan viðskiptavin um að skyrið sé íslenskt. Hið rétta er að fyrirtækið er hvorki með útibú hér á landi né er skyrið selt í verslunum hérlendis.

MS hyggst hins vegar fara með íslenska skyrið á breska markaðinn í sumar.

Frétt mbl.is: Arla segist íslenskt og á Höfn

Eitthvað virðist þetta hafa farið fyrir brjóstið á Íslendingum sem skamma fyrirtækið rækilega fyrir misvísandi auglýsingaherferðina. 

Arla hefur hins vegar engu svarað.

Funda um málið á eftir

Jón Axel Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri sölu- og markaðssviðs MS, segist ekki hafa rætt við Arla um málið en hann ætlar að funda með forstjóra Mjólkursamsölunnar mun funda um það á eftir og skoða hvernig best er að fara með það. Þá segir hann löggjöfina í Bretlandi varðandi þessi mál vera annars konar en á Íslandi og því þurfi að skoða málin vandlega 

Þá bendir hann á að MS hafi verið í samkeppni við Arla á skyrmarkaðnum í Danmörku og þar hafi aldrei verið gefið í skyn að Arla skyrið væri íslenskt. „Það hljóta að vera einhverjir aðrir að stjórna hlutunum í Bretlandi en í Danmörku,“ segir hann. „Ég held hreinlega að þetta hljóti að vera einhver mistök, því þetta er svo lúðalegt, að þykjast vera einhver annar en maður er.“

Frétt mbl.is: Gæti komið MS vel í Bretlandi

Hér að neðan má sjá færslurnar þar sem Íslendingar láta í sér heyra.

Skyr has been eaten and enjoyed for generations. See for yourself.

Posted by Arla Skyr on Tuesday, April 28, 2015

 

Take on a big bowl of Arla Skyr, then the great outdoors.

Posted by Arla Skyr on Tuesday, April 28, 2015



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK