Margir sem fylla á tankinn í dag

Hjá N1 er 27 krónu afsláttur í dag.
Hjá N1 er 27 krónu afsláttur í dag. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Eldsneytislítrinn fæst á 27 og 28 krónu afslætti hjá flestum olíufélögum landsins í dag. Afslátturinn er í einhverjum tilvikum tengdur gengi íslenska handboltaliðsins á HM í Frakklandi og til að mynda hefur ÓB heitið 13 krónu afslætti daginn eftir hvern leik og ef liðið vinnur leik leggst markamunurinn ofan á. Þar sem að íslenska karlalandsliðið í handbolta sigraði Angóla í gærkvöldi með 14 marka mun er afslátturinn 27 krónur.

Þá er afslátturinn hjá N1 einnig 27 krónur og 2 punktar að auki á hvern lítra til N1 korthafa.

Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs hjá N1, segir þennan afslátt í dag óvenjuháan en bætir við að fyrirtækið hafi viljað fagna góðu gengi íslenska landsliðsins í handbolta með þessum hætti en það hefur verið gert áður í tengslum við stórmót í greininni.  

Guðný segir alltaf marga nýta sér afsláttardagana til þess að fylla bílinn og að þá daga sjáist söluaukning. En á sama tíma hefur afslátturinn auðvitað veruleg áhrif á framlegð fyrirtækisins.

„En stefna N1 varðandi afsláttardaga almennt er sú að ef samkeppnisaðilarnir eru með afsláttardag tekur N1 þátt með því að bjóða N1 korthöfum sambærilegan afslátt eða jafnvel meiri,“ segir Guðný í samtali við mbl.is. „Okkar viðskiptavinir eiga því ávallt að geta stólað á að þeir njóti bestu kjara. Það er gríðarleg samkeppni á markaðinum og viðskiptavinir njóta þess með þessum hætti.“

Þá er 28 krónu afsláttur í dag á stöðvum Orkunnar og Skeljungs þegar greitt er með kortum/lyklum Orkunnar eða staðgreiðslukorti Skeljungs. Afslátturinn gildir þó ekki á X-stöðvum Orkunnar en þar er lægra verð en aldrei afslættir í gildi. Einnig er 27 krónu afsláttur með dælulykli Atlantsolíu í dag. 

ÓB hefur heitið 13 krónu afslætti daginn eftir hvern leik …
ÓB hefur heitið 13 krónu afslætti daginn eftir hvern leik og ef liðið vinnur leik leggst markamunurinn ofan á. mbl.is/Hjörtur
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK