Hagnaður Fjarskipta minnkar um 22%

Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður …
Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður vegna rekstarársins 2016. Í tilkynningunni kemur fram að unnið er að gerð kaupsamnings vegna kaupa á ljósvaka- og fjarskiptahluta 365 sem áætlað er að klárist fyrir lok fyrsta ársfjórðungs. mbl.is/Ómar Óskarsson

Heildartekjur Fjarskipta hf. námu 13.655 milljónum króna á síðasta rekstarári sem er 1% lækkun milli ára. Tekjur á fjórða ársfjórðungi námu 3.450 milljónum króna sem er lækkun um 5% á milli ára. Í tilkynningu er haft eftir forstjóra félagsins að síðasta ári hafi verið að mörgu leyti sérstakt ár í rekstri Fjarskipta þar sem margt fór saman; miklar launahækkanir í tengslum við kjarasamninga, einskiptiskostnaður vegna húsnæðismála, hagræðingaraðgerða og vinnu sérfræðinga við áreiðanleikakönnun vegna hugsanlegra kaupa á 365 miðlum.

Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður vegna rekstarársins 2016. Í tilkynningunni kemur fram að unnið er að gerð kaupsamnings vegna kaupa á ljósvaka- og fjarskiptahluta 365 sem áætlað er að klárist fyrir lok fyrsta ársfjórðungs.

Rekstarhagnaður ársins nam 1.632 milljónum króna sem er 15% lækkun á milli ára, en rekstrarhagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 327 milljónum króna sem er 14% lækkun á milli ára. Þá nam EBITDA hagnaður ársins  3.040 milljónum króna og minnkar um 6% frá árinu 2015. EBITDA hagnaður nam 694 milljónum króna á ársfjórðungnum og lækkar um 3% á milli tímabila.

22% og 32% minni hagnaður

Hagnaður ársins nam 1.007 milljónum króna og minnkar um 22% á milli ára - hagnaður á ársfjórðungnum nam 170 milljónum króna sem er 32% lækkun frá sama tímabili árið 2015.

EBITDA horfur eru hækkaðar á ný fyrir árið 2017, og áætlaðar í kringum 3.250 milljónir króna og fjárfestingarhlutfall í kringum 11%.

Flytja á Suðurlandsbraut

„Árið 2016 var að mörgu leyti sérstakt ár í rekstri Fjarskipta hf. þar sem margt fór saman; miklar launahækkanir í tengslum við kjarasamninga, einskiptiskostnaður vegna húsnæðismála, hagræðingaraðgerða og vinnu sérfræðinga við áreiðanleikakönnun vegna hugsanlegra kaupa á 365 miðlum hf. Á sama tíma höfðu markaðsaðstæður neikvæð áhrif á meðaltekjur af viðskiptavinum. Mótvægisaðgerðir gengu vel þar sem vöxtur í fjölda viðskiptavina hefur ekki verið meiri í seinni tíð eða 7%. Sjónvarpsvörur félagsins skiluðu mikilli aukningu í tekjum sem unnu á móti fyrrgreindum neikvæðum þáttum þrátt fyrir lækkun tekna í heildsöludreifingu sjónvarps. Horfur í rekstri félagsins fyrir árið 2017 eru betri, þar sem ætla má að hagræðingaraðgerðir árið 2016 og vöxtur viðskiptavina skili sér í betri rekstri árið 2017. Gert er ráð fyrir að félagið geti skilað um 3.250 milljónum sem væri betri niðurstaða m.t.t. EBITDA en árið 2015 sem var metár í rekstri félagsins,“ er haft eftir Stefáni Sigurðssyni, forstjóra Fjarskipta í tilkynningu.

„Það eru spennandi tímar framundan hjá félaginu og mörg þróunarverkefni í burðarliðnum. Vodafone hefur tekið leiðtogahlutverk í IoT (Internet of Things) í samstarfi við Vodafone Group sem er leiðandi í heiminum á því sviði. Nýverið kynnti félagið tilraunaverkefni í samstarfi við Huawei varðandi NB-IoT (Narrowband Internet of Things) kerfi, en þessi tækni mun gera Íslendingum kleift að vera meðal leiðandi þjóða í hlutanetsbyltingunni á næstu árum. 

Enn er unnið að gerð kaupsamnings vegna fyrirhugaðra kaupa á ljósvaka- og fjarskiptahluta 365 miðla hf. og bindum við vonir við að sú vinna klárist fyrir lok fyrsta ársfjórðungs. Það styttist auk þess í flutning í nýjar framtíðarhöfuðstöðvar félagsins að Suðurlandsbraut 8, sem mun skila félaginu hagræðingu en á sama tíma bæta til muna húsnæðiskost félagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK