Umbætur á pari við heila nýja virkjun

Veikar tengingar milli Norðurlands og suðvesturhorns landsins ollu því að þjóðarbúið varð af fimm milljörðum króna fyrir tveimur árum. Margt bendir til þess að áþekk staða sé að koma upp nú og nemur þá uppsafnað tap vegna þessa veikleika 10 milljörðum króna.

Þetta segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, í viðtali í Dagmálum á mbl.is í dag.

„Ef við hefðum haft þessa tengingu sterkari hefðum við getað komið í veg fyrir þetta ástand. Þá hefðum við getað hagrætt í rekstrinum og flutt yfir lengri tíma, það vissu allir í hvað stefndi, vatnsárið var slæmt. Flutt orku, framleitt meiri orku fyrir norðan og austan og sparað meira virkjanir fyrir sunnan. Fyllt þá betur í lónin og verið betur í stakk búin til að takast á við ástandið,“ segir Guðmundur.

Tvær stórar virkjanir, Fljótsdalsstöð og Blönduvirkjun eru ekki keyrðar á …
Tvær stórar virkjanir, Fljótsdalsstöð og Blönduvirkjun eru ekki keyrðar á fullum afköstum vegna veikleika í flutningskerfi raforku um landið þvert og endilangt. mbl.is/RAX

Virkjanir ekki keyrðar á fullum afköstum

Bendir hann á að hvorki Blönduvirkjun né Fljótsdalsstöð séu keyrðar á fullum afköstum vegna þess hversu veikt flutningskerfið er. Það sé bagalegt, nú þegar orkuskortur er orðinn viðvarandi á landi. Landsnet var raunar langt á undan öðrum í að benda á að þessi skortur yrði að veruleika. Guðmundur segir að fyrirtækið hafi lengi talað fyrir daufum eyrum en það hafi breyst mjög hratt á síðustu vikum og mánuðum.

Með styrkingu flutningskerfisins myndi það efla orkuframleiðslu í landinu svo um munar. Segir Guðmundur að aflaukningin myndi jafngilda því að nýrri virkjun, á stærð við þá sem rekin er í Svartsengi, væri bætt inn á kerfið.

Viðtalið við Guðmund Inga má sjá og heyra í heild sinni hér að neðan:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK