Nærri tíu milljónir rúmmetra af kviku

Áfram gýs úr einum gíg.
Áfram gýs úr einum gíg. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson

Gera má ráð fyrir að tíu milljónir rúmmetrar af kviku hafi safnast undir Svartsengi frá því að eldgosið hófst 16. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands en í fyrri atburðum hefur kvika hlaupið frá Svartsengi þegar á bilinu 8 til 13 milljónir rúmmetra hafa bæst við í kvikuhólfið frá síðasta kvikuhlaupi.

Frá 5. apríl hefur einungis einn gígur, skammt austan við Sundhnúk, verið virkur í eldgosinu. Hraun rennur nú stutta vegalend til suðurs frá gígnum í opinni hrauná en lengra í lokuðum rásum.

Þá segir í tilkynningunni að hluti hraunbreiðunnar nærri varnargörðum austan Grindavíkur heldur áfram að þykkna hægt og rólega. 

Þrjár sviðsmyndir 

Haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega. Þá eru þrjár sviðsmyndir líklegastar. 

Í fyrsta lagi gætu nýjar gossprungur opnast á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells og/eða að núverandi gosop stækki vegna skyndilegrar aukningu í hraunflæði sem gæti orðið sambærilegt við upphafsfasa síðustu eldgosa á svæðinu. Það gæti gerst með mjög stuttum eða engum fyrirvara.

Í öðru lagi er mögulegt að kvikuflæði úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina fari að aukast jafnt og þétt þar til að jafnvægi verði á milli innstreymi kviku inn í kvikuhólfið og útstreymis þaðan og uppá yfirborð.

Einnig er mögulegt að það verði kvikuhlaup sem endi með því að nýjar gossprungur opnast annarsstaðar en á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Þessi sviðsmynd er talin ólíklegri en hinar og henni myndi fylgja töluverð skjálftavirkni og aflögun með meiri fyrirvara en undanfarin eldgos. 

Línuritið sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir …
Línuritið sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir Svartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023. Kort/Veðurstofa Íslands

Dregur ekki úr gasútstreymi

Á miðvikudaginn, 24. apríl, framkvæmdu sérfræðingar Veðurstofunnar mælingar á gasútstreymi frá eldgosinu.

Það ver metið 6-9 kg/s af brennisteinsdíoxíð (SO2) en í síðustu mælingu sem gerð var fyrir tveimur vikum, 12. apríl, var gasútstreymið metið 10 –18 kg/s.

„Það eru ekki vísbendingar um að það sé að draga gasútstreymi út frá eldgosinu. Á meðan að eldgos heldur áfram getur flæði SO2 verið mjög breytilegt frá degi til dags (eins og í eldgosin við Fagradalsfjall sýndu).“

Þá segir að áfram sé hætta á gasmengun á svæðinu umhverfis gíginn sem og í byggð á Reykjanesskaganum. Veðurstofan bendir því fólki á svæðinu að fylgjast með loftgæðum á loftgaedi.is og kynna sér þar viðbrögð við loftmengun frá eldgosinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert