Mara og Phoenix bæta í hópinn

Stjörnuhjónin á rauða dreglinum fyrir örfáum árum.
Stjörnuhjónin á rauða dreglinum fyrir örfáum árum. AFP

Leikkonan Rooney Mara á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum Joaquin Phoenix. Opinberaði hún óléttu sína á rauða dregli Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Berlín fyrr í mánuðinum. 

Hjónin er sögð í skýjunum með væntanlegan erfingja að því er fram kemur í nýjasta tölublaði Us Weekly. „Mara og Phoenix elska foreldrahlutverkið,“ staðfestir heimildamaður í samtali við tímaritið. „Þau eru gott teymi og hafa mikla ánægju af þessu ferðalagi.“

Fyrir eiga þau tæplega fjögurra ára son, River. Sá er nefndur í höfuðið á bróður Phoenix, leikaranum River Phoenix heitnum. Hann lést árið 1993 úr of stórum lyfjaskammti.

Mara og Phoenix kynntust þegar þau léku saman í kvikmyndinni Her frá árinu 2013. Þau byrjuðu svo saman þegar þau léku í kvikmyndinni Mary Magdalene þremur árum síðar, en þar fóru þau með hlutverk Maríu Magðalenu og Jesú Krists. 

Rooney Mara faldi óléttukúluna í stórri dragt.
Rooney Mara faldi óléttukúluna í stórri dragt. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert