Edda Falak á von á sínu fyrsta barni

Kristján Helgi og Edda Falak.
Kristján Helgi og Edda Falak. Skjáskot/Instagram

Edda Falak, fyrrverandi blaðamaður á Heimildinni, og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálf­ari í Mjölni, eiga von á sínu fyrsta barni. 

Edda greindi frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram rétt í þessu. 

„Foreldrar. Síðustu ár hef ég eytt tíma mínum og orku í mikilvæg samfélagsmál. Síðustu mánuðir hafa hins vegar farið í að draga úr streitu og hlúa að sjálfri mér, í kjölfarið fékk ég besta hlutverk í heimi, loksins mamma,“ skrifaði Edda við myndaseríu á Instagram sem sýnir óléttukúlu, sónarmyndir og samfellu.

Edda og Kristján Helgi byrjuðu saman snemma árs 2021. Hún staðfesti sam­bandið í sam­tali við Smart­land. 

Fjölskylduvefurinn óskar Eddu og Kristjáni Helga innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by Edda Falak (@eddafalak)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert