Ísraelska leikkonan Gal Gadot er orðin fjögurra barna móðir. Gadot birti mynd af sér og nýfæddri dóttur sinni á Instagram í gærdag. Stúlkan hefur hlotið nafnið Ori, en það þýðir ljósið mitt.
„Ljúfa stúlkan mín, velkomin,“ skrifaði Gadot við færsluna. „Meðgangan var ekki auðveld en við komumst í gegnum þetta saman.“
Leikkonan, 38 ára, lét lítið fyrir sér fara yfir meðgöngutímabilið og hélt óléttunni leyndri.
Gadot og eiginmaður hennar Yaron Varsano gengu í það heilaga árið 2009. Fyrir eiga þau dæturnar Ölmu, Mayu og Daniellu.