Lilja Rannveig á von á sínu þriðja barni

Lilja Rannveig er þingmaður Framsóknarflokksins.
Lilja Rannveig er þingmaður Framsóknarflokksins.

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum Ólafi Daða Birgissyni. 

Lilja Rannveig greinir frá gleðitíðindunum á Instagram.

„Samkvæmt nýjustu tölum úr kjördæminu mun fjölga í Stafholtstungunum í haust. Eins og planið er núna þá munum við foreldrarnir fara úr maður-á-mann vörn á heimilinu og skipta yfir í svæðisvörn. Og já, engar áhyggjur, það er bara eitt á leiðinni. Endurtalning fór fram á höfuðborgarsvæðinu til öryggis,“ skrifar Lilja Rannveig á Instagram.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar hjónunum innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert