Björninn væntanlega rolla

AP

Jarðvegur er rakur þar sem talið var að hvítabjörn hafi haldið sig við Bjarnafell á Skaga og sáust greinileg spor eftir sauðfé þar . Er það mat lögreglu að bjarndýr hafi ekki getað farið um svæðið án þess að slíkt myndi sjást á jarðvegi á vettvangi. Við svo búið telur lögregla að ekki sé ástæða til áframhaldandi leitar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Mikil leit hefur verið gerð úr lofti frá því á sunnudagskvöld án þess að bjarnar hafi verið vart. Í gærkvöld fóru lögregla, björgunarsveitarmenn og skyttur á það svæði sem tilkynnandi taldi sig hafa séð dýrið.

Út frá myndum frá tilkynnanda var hægt að finna nákvæma staðsetningu. Við skoðun kom í ljós að engin ummerki voru eftir bjarndýr á svæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert