„Látum sverfa til stáls“

Frá fundinum á Austurvelli í dag.
Frá fundinum á Austurvelli í dag. mbl.is/Kristinn

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að erfiðir og alvarlegir tímar séu framundan og fjölskyldur hafi orðið fyrir gríðarlegu áfalli. „Um langt skeið hefur verkalýðshreyfingin ekki þurft eins mikið á að halda órofa stuðningi og samstöðu allra sinna félagsmanna,“ sagði hann í ræðu sem hann flutti af tilefni 1. maí hátíðarhaldanna á Akureyri í dag. 

„Nú látum við sverfa til stáls í krafti samstöðunnar sem á tæpum hundrað árum hefur fært vinnandi fólki á Íslandi ófáa sigrana. Við skulum brjóta gíslatöku SA á bak aftur og krefjast réttmætra launahækkana,“ sagði Gylfi sem gerði kjaramáli að umtalsefni í ræðu sinni.

Hann segir að það komi ekki til álita að atvinnurekendur misnoti Alþýðusambandið eða kjarasamninga launafólks til þess að treysta eignarhald LÍÚ á sjávarauðlindinni.

„Ég verð einnig að lýsa furðu minni yfir því, að forystumenn annarra atvinnugreina í landinu hafi látið draga sig út í þetta fúafen. Öllum ætti að vera ljóst, að útgerðamenn geta ekki annað en hagnast á langvinnri kjaradeilu og verkföllum. Þá veikist krónan og þeir græða og ef þeim tekst að fella ríkisstjórnina þá yrði það þeim ekki síður að skapi. Þeir munu ekki bera herkostnaðinn af því, það munu aðrar atvinnugreinar og íslenskur almenningur gera,“ sagði Gylfi.

Hann segir að staðan í kjaramálum sé grafalvarleg og að djúp gjá sé á milli höfuðsamtakanna á vinnumarkaði. 

„Ljóst er að til þess að rjúfa þessa kyrrstöðu og gíslatöku LÍÚ og SA þarf verkalýðshreyfingin að sameinast og bregðast hart við og það gerum við einungis með því að leita til félagsmanna okkar um heimild til verkfalla.

Til þess erum við treg því samfélagslegur kostnaður verkfalla er mikill og mikil ábyrgð sem fylgir notkun þeirra. Það er hins vegar búið að stilla okkur upp við vegg og við eigum engra annara kosta völ en að grípa til verkfallsvopnisins. Ekki einungis er langlundargeð okkar gagnvart atvinnurekendum þrotið, það er búið að misbjóða íslensku launafólki herfilega með því að taka kjarabætur þess í gíslingu við þessar aðstæður,“ sagði hann.

Ræða Gylfa.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/Kristinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert