Föstudagsfiðrildi á flugi

Listamenn létu ljós sitt skína í Reykjavík í dag.
Listamenn létu ljós sitt skína í Reykjavík í dag. mbl.is/Eggert

Listhópar Hins Hússins og Götuleikhúsið stigu á stokk á götum Reykjavíkurborgar í dag þegar fyrsta Föstudagsfiðrildi sumarsins fór á flug. Hóparnir stóðu fyrir ýmsum listrænum uppákomum og gjörningum.

Tilgangurinn er að glæða götur miðbæjarins lífi með viðburðarríkri dagskrá og með sköpunargleðina að leiðarljósi.

Fiðrildin verða á flugi í sumar föstudagana 10. júní, 1. júlí og 15. júlí á milli kl. 12 og 14 klukkan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert