Eldur logaði í jeppa við Sporðagrunn

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á öðrum tímanum í dag eftir að eldur kom upp í Benz-jeppa sem stóð við Sporðagrunn í Reykjavík. Slökkvistarf gekk vel fyrir sig og aðrar bifreiðar voru ekki í hættu. Eldsupptök eru ókunn en bifreiðin er gjörónýt. Málið er í rannsókn.

Vegfarendurnir Rakel Erna Skarphéðinsdóttir og Stefán Pálsson tóku myndir af vettvangi og sendu mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert