Herbalife vísar fullyrðingum á bug

Grænt te kemur í ýmsum útgáfum.
Grænt te kemur í ýmsum útgáfum. Samsett mynd

Fæðubótafyrirtækið Herbalife segir að ekki hafi tekist að sanna að tengsl séu á milli neyslu Herbalife-vara og lifrasjúkdóma. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu, þar sem það vísar því alfarið á bug sem fram kom frétt á mbl.is í gær um að neysla á grænu tei geti skaðað lifrina.

Í yfirlýsingunni er því harðlega mótmælt að fjallað sé um vörur Herbalife í tengslum við lifraskaða. 

Fram kom í frétt mbl.is, að árið 2010 hafi Magnús Jó­hanns­son, lækn­ir og pró­fess­or í lyfja- og eit­ur­efna­fræði, skrifað grein í Læknablaðið ásamt melt­ing­ar­lækn­un­um Sif Ormars­dótt­ur og Sig­urði Ólafs­syni, um tengsl á milli lifraskaða og notk­un­ar á vör­um frá fæðubótafram­leiðand­an­um Her­bali­fe sem inni­héldu meðal ann­ars grænt te.

Talsmaður Herbalife segir í yfirlýsingunni að niðurstöður umræddrar rannsóknar hafi ítrekað verið hraktar. Fyrirtækið segir að neysla á grænu tei sé örugg og svo hafi verið um allan heim í mörg þúsund ár. 

Yfirlýsingin í heild er á ensku í viðhengi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert