Sigurður VE 15, nýtt skip Ísfélags Vestmannaeyja, kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum um hádegisbilið í dag. Skipið verður til sýnis bæjarbúum og gestum frá klukkan 14 til 17.
Skipinu var vel fagnað þegar það kom til Eyja í dag, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði Júlíusar Ingasonar. Guðbjörg Matthíasdóttir tók við spottanum úr hendi sonar síns, Sigurðar Sigurðarssonar, sem er í áhöfn skipsins, þegar Sigurður VE lagðist að bryggju.
Sigurður VE er 3763 lesta uppsjávarskip, 80,3 metrar á lengd og 17 metrar á breidd. Aðalvél er af gerðinni Wartsila 9L32, 4.500 kW en skipið var smíðað í Tyrklandi. Skipið er útbúið með rúmum fyrir 22 manns í 15 klefum en burðargeta skipsins er rétt tæplega 3000 rúmmetrar af afla.
Fram hefur komið hjá forsvarsmönnum Ísfélagsins, að kaupin á nýja skipinu séu liður í endurnýjun skipaflota félagsins og tengist þeirri þróun að uppsjávaraflinn fer meira í landvinnslu en áður. Fljótlega verður byrjað á að útbúa Sigurð VE á makrílveiðar.