Tekur vinina stundum með sér á rúntinn

Guðjón Daníelsson á Fáskrúðsfirði er næstelsti ökumaður landsins, 101 árs.
Guðjón Daníelsson á Fáskrúðsfirði er næstelsti ökumaður landsins, 101 árs. Ljósmynd/Óskar Guðmundsson

„Ég er með prófið en ég keyri nú ekki orðið mikið. Bíllinn er hérna við dvalarheimilið og ég býð félögum mínum stundum á rúntinn um bæinn. Annars tek ég lífinu bara rólega og hef það ágætt,“ segir Guðjón Daníelsson, 101 árs fyrrverandi bóndi á Kolmúla við Reyðarfjörð, en undanfarin þrjú ár hefur hann búið á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Guðjón fæddist 18. mars árið 1913, eða nokkrum mánuðum áður en Morgunblaðið var stofnað!

Sjö ökumenn 98 ára og eldri

Guðjón er næstelsti ökumaður landsins með gilt skírteini, en eins og kom fram í Morgunblaðinu sl. mánudag er Jón Hannesson í Kópavogi elstur, 102 ára. Guðjón er hins vegar elstur ökumanna á Austurlandi.

Tveir ökumenn eru 99 ára gamlir, þrír 98 ára og sá áttundi 97 árs gamall. Elstu ökumennirnir eru nokkuð dreifðir um landið en enginn þó á Vesturlandi, Vestfjörðum eða Suðurnesjum. Allt eru þetta karlmenn. Elsti ökumaðurinn í Reykjavík er 99 ára gamall.

Eitt ár í senn eftir áttrætt

Að sögn Jónasar Ragnarssonar, umsjónarmanns síðunnar Langlífis á Facebook, eru 19 Íslendingar 95 ára og eldri með ökuskírteini í gildi, þar af 17 karlar og tvær konur.

Gildistími ökuréttinda þeirra sem hafa náð 80 ára aldri er eitt ár. Til skamms tíma var endurnýjunin ókeypis en nú þarf að greiða 1.650 kr. Eftir 65 ára aldur þarf að skila læknisvottorði þar sem staðfest er að umsækjandi sjái og heyri „nægilega vel“, eins og það er orðað, og sé að öðru leyti „nægilega hæfur“ andlega og líkamlega til að aka bíl.

Ekki með tölu á afkomendum

Guðjón ekur um á Toyota sem hann hefur átt í mörg ár. Ökuskírteinið hefur aldrei verið fellt úr gildi og hann er því búinn að hafa próf í meira en 80 ár, aldrei þó með meirapróf.

„Ég fer annað slagið út í göngutúra og þarf ekki mikið orðið á bílnum að halda, hef allt til alls hérna á Uppsölum.“

Guðjón var með búskap til fjölda ára á Kolmúla en stundaði einnig sjómennsku.

„Ég er vel hress þó að aldurinn færist yfir og hef aldrei orðið fyrir skakkaföllum. Ég hef haldið góðri sjón og les því bækur og blöð. Mér líður bara vel þó að ég sé orðinn þetta fullorðinn,“ segir Guðjón en hann eignaðist sjö börn með Jónu Björgu Guðmundsdóttur. Hún lést árið 2002, á 82. aldursári. Börn þeirra komust öll á legg og Guðjón segir þau hafa dreifst um landið, mörg búi þau á höfuðborgarsvæðinu.

Spurður um fjölda barnabarna og annarra afkomenda sagðist hann bara ekki hafa tölu á þeim, þau væru svo mörg!

Mikilvæg réttindi að geta ekið

Ársæll Jónsson, fv. öldrunarlæknir, segir það afar mikilvæg réttindi fyrir eldra fólk að hafa bílpróf og geta ekið.

„Það er hægt að treysta á dómgreind fólks að haga akstri eftir eigin aðstæðum og fara ekki út í vitlaust veður eða þungar akbrautir. Fólk vill ekki lenda í tjóni. Margir aka bara innan síns hverfis á björtum degi og yfirleitt gengur þetta bara mjög vel,“ segir Ársæll.

Hann segir alþjóðanefndir hafa fjallað um akstur eldra fólks og formaður einnar slíkrar nefndar, írskur prófessor, hafi lagt áherslu á að fólk fengi að aka bílnum eins lengi og heilsan leyfði og það treysti sér til.

„Aðstandendur fólks með heilabilun verðar hræddir um að það fari sér að voða og það getur orðið mjög erfitt að eiga við það,“ segir Ársæll og bendir á að eldri ökumenn geti farið í sérstök hæfnispróf. „Aðstandendur hafa einnig beitt fjárhagslegum rökum fyrir því að pabbi gamli eða mamma endurnýi ekki ökuskírteinið, það sé svo dýrt að reka bíl að það sé hægt að taka marga leigubíla fyrir sömu upphæð.“

Ársæll segir öldrun geta hellst yfir fólk og komi fram í skertri samhæfingarfærni og ratvísi. „Einn góður vinur minn, á tíræðisaldri, lenti einu sinni í því að taka vitlausa beygju inn í hverfi sem hann átti ekki heima í. Hann tók bara mann upp í og bað hann að vísa sér rétta leið heim. Þakkaði honum síðan fyrir með því að bjóða honum út að borða á hamborgarastað.“

Frétt mbl.is:

Viðtal við Jón Hannesson, 102 ára, elsta ökumann Íslands

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert