Bílvelta í Hrútafirði

mbl.is/Hjörtur

Enginn slasaðist alvarlega þegar bíll valt í Hrútafirði á sjötta tímanum í dag. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi voru erlendir ferðamenn á bílnum og sakaði þá ekki.

Mikil hálka er á svæðinu og telur lögregla að um hafi verið að kenna vanbúnaði og kunnáttuleysi í aðstæðum sem þessum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert