Fólksbíll fór út af þjóðvegi eitt í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu um klukkan 19:00 í kvöld samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi.
Einn var í bifreiðinni þegar óhappið varð og slapp hann með minniháttar meiðsli. Slysið má líklega rekja til aðstæðna.