Vor í lofti í Húsdýragarðinum

Hér má sjá nýja móttökuhúsið.
Hér má sjá nýja móttökuhúsið. Ljósmynd/Reykjavíkurborg.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði nýtt móttökuhús í Fjölskyldu og húsdýragarðinum í Laugardal í morgun.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að nú verði loksins hægt að hafa þjónustu, eins og miða- og minjagripasölu, símavörslu, vörumóttöku og móttöku hópa innandyra. Húsið er 120 fermetrar að stærð. Með byggingu þess er lokið fyrsta áfanga í nokkurra ára uppbyggingaráætlun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal.

Borgarstjóri heilsaði upp á starfsfólk garðsins , hönnuði og verktaka sem unnið hafa að nýja húsinu í morgun. Börn af leikskólanum Laugasól litu við en þau voru nýbúin að skoða hreindýr og pöddur þegar þau hittu borgarstjóra og þáðu djús og veitingar.  

Móttökuhúsið er fyrsti áfanginn uppbyggingaráætlun garðsins en næstu skref eru opnun nýs vaðleikjasvæðis í Fjölskyldugarðinum í maí. Þá mun bygging dýrahúss hefjast í ár sem og hönnun á betri fræðslu- og starfsmannaaðstöðu.

Það er vor í lofti í Húsdýragarðinum og hægt að heilsa upp á forvitna nautkálfa í fjósinu, nýklakta kjúklinga í smádýrahúsi og kiðlingar eru væntanlegir í geithúsið á næstu dögum en huðnurnar eru alveg komnar að burði.

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður opinn alla páskana frá 10 – 17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert