Tvær bílveltur við Húsavík

mbl.is/Malín Brand

Tvær bílveltur urðu í nágrenni við Húsavík seinnipartinn í gær en færðin var allslæm.

Að sögn lögreglu á svæðinu voru tveir úr öðrum bílnum og einn úr hinum færðir á sjúkrahús á Húsavík en allir fengu að fara heim að lokinni skoðun.   Önnur bílveltan varð í Reykjadal og hin sunnan við Húsavík. Báðir bílar eru talsvert skemmdir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert